Daginn,

Mig langaði aðeins að spyrjast fyrir. Ég á stelpu sem er 5 ára sem hefur mikinn áhuga á gítar og hefur fram til þessa verið í söng. Okkur langar svolítið að leyfa henni að fara á gítarnámskeið en ég hef ekki fundið neitt fyrir börn á þessum aldri. Vitið þið hvort að það sé almennt til?

Einnig heldur konan að það sé til svona námskeið þar sem að börnin fá Gítar að láni á meðan námskeiðið er, þekkið þið það?

Hvernig gítar er mælt með fyrir svona gríslinga?
Joi Guðni