Hef hér Line 6 DL4 stompbox til sölu. Með betri delay pedulum á markaðnum. Inniheldur 14-sekúndna looper, sem er alveg hægt að týnast í að leika sér með.
Endalaust af liði sem nota þennan pedal.
Kostar nýr 47900,- ef ég man rétt.

Heimasíða: http://line6.com/dl4/


Er svo með annan pedal úr stompbox línunni. Line 6 FM4 (Filter Modeler). Hægt er að ná ótrúlegum sándum í þessari græju. Skemmtilega spes pedall.
Kostar eitthvað í kringum 42000,- nýr.

Heimasíða: http://line6.com/fm4/


Set 20.000,- á stk. sem er ekki neitt fyrir þessar græjur.



Er svo með T-Rex Alberta, Overdrive/Tube Screamer til sölu. Tekur Ibanez Tube Screamerinn og skilur hann eftir í rykinu.
Frábær i blús og fyrir framan lampamagnara.

Linkur + Video: http://t-rex-effects.com/Default.aspx?ID=2&ProductID=PROD30&VariantID=

Lækkað verð: 20.000,-


T-Rex Comp-Nova. Compressor í heimsklassa. Óteljandi tónlistarmenn sem nota þennan grip.

Linkur + Video: http://t-rex-effects.com/Default.aspx?ID=2&ProductID=PROD5&VariantID

Lækkað verð: 15.000,-


Vox VibraVOX CT06. Frábær Tremolo/Vibrato lampaeffect. Er mjög vel með farinn. Kemur í upprunalega kassanum.

Specs:

# Connection: Input: x1 (guitar input), Output: x1 (line output)
# Controls: Depth, Ratio, Skew, Volume, Speed 1, Speed 2, Mode Select
# Tube: 12AU7
# Power: 4 x AA batteries (allows 16 hours of operation)
# Dimensions: 1 6.84 cm (6.63”) (W) x 15.55cm (6.12”) (H) x 6.4cm (2.52”) (D)
# Options: 9V AC adapter

Video: http://www.youtube.com/watch?v=U8SuLBZkVR0

Verð 25.000,-


Er með Acoustic Image Corus magnara ásamt tösku til sölu.
Hefur svipaða notkunarmöguleika og AER magnararnir, nema hvað að þessi er MIKLU kraftmeiri.
Hægt er að nota hann við gítar, hljómborð, söng, bassa o.s.frv.
Horfið á videoið til að sjá hvernig magnarinn virkar.

Linkur: http://www.acousticimg.com/products/prod_corus.html

Video: http://www.youtube.com/watch?v=XvEFroYIZOY

Í alla staði frábær magnari.
Verðhugmynd: 180.000,-
Magnarinn er í Tónastöðinni í Reykjavík, ef menn hafa áhuga á að prófa.


MXL 2003 condenser mic. Hann var keyptur fyrir nokkrum árum og hefur verið notaður í mesta lagi tíu sinnum. Hann er ótrúlega vel með farinn og sést ekkert á honum.
Hann kemur í fóðruðum kassa ásamt lítilli leðurtösku (svona eins og fylgir flestum Shure micum) sem er enn í plastinu og Shock Mount Adapter festingu.
Ég gæti ekki séð mun á nýjum svona beint úr kassanum, og þessum.
Og já, hann er með Phantom Power.

Linkur: http://hljodfaerahusid.is/is/mos/viewProduct/1643


Svo er ég með annan MXL 1006BP, sem er reyndar töluvert notaður, en er þó í fínu standi.
Hann kemur í harðri tösku ásamt Shock Mount festingu og einni annarri festingu sem ég veit ekki hvað heitir.
Munurinn á MXL1006 og MXL1006BP týpunum er sá að BP er Battery Powered (sbr. BP…).

Ég hef notað þessa Mica saman sem Overheada á trommur og sánda þeir mjög vel sem slíkir. Einnig til að taka upp gítar og þá helst söng og hefur það reynst mér vel. Annars eru þetta mjög Universal míkrafónar og virka þeir ágætlega fyrir flest.

Verð: 20.000,- stk.

Fara saman á 35.00,-


Orange Tiny Terror og Trace Elliot 4x12 box. Æðislegur magnari með svakalegu drive sándi, og hægt er að ná flottu clean sándi svo sem líka.
Þessi magnari er alger draumur í upptökur því hægt er að smella honum í 7-watta módið og þá er hægt að ná alveg hvínandi bjögun án þess að ættingjarnir á Siglufirði séu að kvarta yfir hávaða.
Hann er vel með farinn og kemur með tösku.
Boxið er 8 ohm. Svo sem ekki margt annað að segja um það. Fínasta box.

Video: http://www.youtube.com/watch?v=6_VfqiPeTIU

Verð: 70.000,- (haus + box)
Skoða einhver skipti.


Er staddur á Akureyri. Þó er lítið mál að koma hlutunum milli landshluta.



PM