Er með til sölu Dave Smith Instruments TETRA fjögurra radda polysyntha með fullkomlega analogue signal path. Synthinn er með tveimur DCO fyrir hverja rödd, 8 alls og tvo suboscillatora fyrir hverja rödd. Hann er með 4 LFO sem þú getur routað hvert sem er og þúsundir modulation-möguleika.

Dave Smith er einn af frumkvöðlum MIDI-tækninnar og því er mjög gott MIDI implementation með tilheyrandi automapping og þess háttar.

Tetra er í grunninn eins og helmingurinn af DSI Prophet '08 en hefur fengið mun jákvæðari umfjöllun, meðal annars út af suboscillatorunum, fjögurra hluta multitimbrality og 4 outputum.

Tetra á heimasíðu DSI:
http://www.davesmithinstruments.com/products/tetra/

Hérna eru svo tvö review:
http://blog.dv247.com/dsi-tetra-review/4020/

http://www.musicradar.com/gear/all/keys-synths/synthesizers-compact-synthesizers/compact-synthesizers/tetra-222137/review

Græjan selst vegna fjármögnunar á frekari kaupum, þetta er hljóðfæri sem ég vil alls ekki láta frá mér.

Hann var keyptur fyrir örfáum mánuðum síðan og kostar einhvers staðar á bilinu 130-140 þús í Tónastöðinni en er ekki til hjá þeim sem stendur.
Samloka.