Hljómsveitin Piilot leitar eftir hljómsveit til að deila með æfingarhúsnæði sínu. Það er á góðum stað í Reykjavík. Herbergið er um 50fm, á hæð þar sem enginn annar er. Erum eina hljómsveitin í húsinu og megum spila eftir klukkan 5 virka daga, en eins og við viljum um helgar. Leigan yrði um 25þús á band.

Þetta er einstaklega gott húsnæði. Þess vegna leitum við aðeins að ábyrgðarfullum einstaklingum yfir tvítugt. Helstu skilyrðin eru reglusemi, stundvísar greiðslur, engin eiturlyf og skemmtilegt fólk.

Ef þið hafið áhuga hafið samband við mig hér á huga.