Er með helvíti veglegan og vel meðfarin leður trommustól frá Pacifica sem safnar bara ryki hérna hjá mér. Er hættur að tromma fyrir löngu síðan og þetta er einhvern veginn eini hluturinn sem varð eftir af settinu mínu.

Selst á 6þ. Var kominn með kaupanda á því verði en hef ekki heyrt frá honum í nokkra daga þannig ég gef öðrum sjens á að grípa hann á því verði.