Ég er með eitt stykki upprunalegan A/DA Flanger sem ég hef því miður lítið notað seinustu mánuði.
Þetta er leynivopn margra gítarleikara eins og t.d. Billy Corgan, Paul Gilbert, Omar Rodriguez-Lopez og margra fleirra.

Þetta er sá flanger sem hefur titilinn “the king of flange” og er talinn vera sá besti flanger sem smíðaður hefur verið.


Mig langar að athuga hvort ég fái einhver áhugaverð skipti hérna, og er ég þá hvað mest að leitast eftir FoxxRoxx Captain Coconut, Fulltone Tube Tape Echo eða eftir litlum lampamagnara.

Allir sem hafa áhuga geta svarað hér eða sent mér EP.