Sæl verið þið

Ég er með 14" Sabian AAX Fast hats sem ég væri til í að skipta út. Ég er búinn að eiga þennan hihat í tvö ár núna og mig er farið að kitla í að prufa eitthvað nýtt.

Keypti hann notaðann á 12þús kall í fullkomnu ástandi, fyrir utan að merkingar og logo var farið af. Hann er enþá í fullkomnu standi (semsagt algjörlega sprungu laus og hljómar enþá jafn vel.

Endilega skjótið á mig tilboðum. Eins og ég segi vil ég annan hihat í staðinn.

- Stefán Ari