einhver hardcore trommuleikari óskast í “band” í reykjavík.

erum 2 gítarleikarar fæddir á árinu 1994 (basískt) og okkur vantar trommuleikara..

við ætlum að spila svona gammeldags rokk og ról svona deep purple ledd sepplín einhvað en líka bara einhvað svona iron maiden og svona..

fyrst verður bara koverað einhvað stöff en lög skulu verða smíðuð svo allir upprennandi trommarar endilega hafið samband

það er ekki krafist neinna ofurhæfileika þannig að ef þú spilar einhvað á trommur af viti þá endilega hafðu samband ef þig langar að komast í band.

einnig vantar okkur söngvara/söngkonu í þetta ágæta band

þarf bara að kunna að syngja og helst eiga allavega 1 monitor og svo mic svona til að syngja í gegnum þið skiljið

fínt væri ef “umsækjendur” væru á svipuðum aldri
svo erum við með bílskúr til að spila í
þar er trommusett þar, ekkert svakalegt trommusett en það virkar :)

ekki vera feimin við að koma og prufa, sendið mér bara PM eða mail á atli(at)hotmail.com

kv.
Atli Sig

Bætt við 31. maí 2010 - 17:40
ójá.. við ætlum að prófa að hafa þetta svona bassalaust band en ef það vantar þéttleika í bandið þá ætti að vera lítið mál að redda bassaleikara