Ég er með MXL 2003 condenser mic til sölu. Hann var keyptur fyrir nokkrum árum og hefur verið notaður í mesta lagi tíu sinnum. Hann er ótrúlega vel með farinn og sést ekkert á honum.
Hann kemur í fóðruðum kassa ásamt lítilli leðurtösku (svona eins og fylgir flestum Shure micum) sem er enn í plastinu og Shock Mount Adapter festingu.
Ég gæti ekki séð mun á nýjum svona beint úr kassanum, og þessum.
Og já, hann er með Phantom Power.

Linkur: http://hljodfaerahusid.is/is/mos/viewProduct/1643


Svo er ég með annan MXL 1006BP, sem er reyndar töluvert notaður, en er þó í frábæru standi.
Hann kemur í harðri tösku ásamt Shock Mount festingu og einni annarri festingu sem ég veit ekki hvað heitir.
Munurinn á MXL1006 og MXL1006BP týpunum er sá að BP er Battery Powered (sbr. BP…).


Ég hef notað þessa Mica saman sem Overheada á trommur og sánda þeir mjög vel sem slíkir. Einnig til að taka upp gítar og þá helst söng og hefur það reynst mér vel. Annars eru þetta mjög Universal míkrafónar og virka þeir ágætlega fyrir flest.
Ég set bara 20.000.- á stk. en skoða öll skipti og önnur tilboð.


Svo er ég með ESP Eclipse II. Hann var keyptur nýr í tónastöðinni 26. Ágúst 2008 og hefur mjög lítið verið notaður.
Hann er gríðarlega vel með farinn og sér ekkert á honum fyrir utan litla rispu aftan á headstockinu.
Hann er eins á litinn og þessi hér: http://www.espguitars.com/esp2008/images/guitars/Eclipse-II_VB.jpg
Þó er minn með fjórum svörtum knobum (svipaðir og þessir hér: http://www.boutiquemusicinc.com/e-store/images/Gibson/SK010.gif þó ekki alveg eins) og Coil Splitter.
Einnig er minn með Seymour Duncan JB SH-4 og SH-2n Jazz ef ég man rétt.
Að þessu frátöldu gilda Specs-in á Eclipse-II VB, hér: http://espguitars.com/guitars_eclipse.html
Þessi gítar sándar unaðslega í alla músík frá Jazzi yfir í Death Metal. Enda er listinn af Artistum sem nota svona gítar endalaus.
Ég er helst að leita eftir einhverjum skiptum. Þá helst á einhverjum góðum magnara. Er mjög spenntur fyrir einhverjum góðum Orange haus. Annars hlusta ég á flest mannsæmandi tilboð.


Tilboð í PM.


Bætt við 20. maí 2010 - 14:44
Gleymdi að taka fram að mjög gott hardcase er með gítarnum.