Ég fékk þessa hugdettu nýlega eftir að ég datt inn í 7 strengja gítara, veit einhver til þess að þetta hefur verið gert?

Hugmyndin er í raun bara venjulegur tólf strengja gítar og með tvístrengdan B streng að auki.

Google sýnir mér bara einhverja gítara með 14 strengjum, ekki útfært út frá 12 strengja pælingunni, og þar af leiðandi feitari háls en hönd nær yfir…


Önnur hugmynd var hvort einhverntímann hafi verið framleiddir 12 strengja klassískir gítarar?