Vel með farinn magnari, það sér varla á honum. Ég keypti hann notaðan fyrir 6 mánuðum og hef notað hann á æfingum og í 2 gigg. Nú er hljómsveitin mín komin í frí um óákveðinn tíma, þannig að best er að koma þessari fínu græju í verð.

Hann var í toppstandi þegar ég fékk hann og er enn betri núna eftir lampaskipti.

Ég skipti um alla lampa í honum fyrir 3 mánuðum, 2 x JJ E34L kraftlampar og 4 x JJ ECC83S preamp. Gömlu lampana á ég líka til ef enhver vill það (varla). Nýju lamparnir breyttu honum úr góðum í frábæran.

Verð: 150 - 160 þús.