Halló, allir.
Ég var að renna aðeins yfir þennan kork hérna og rakst á auglýsingu fyrir þessa síðu. Í dauðans ofboði rauk ég til og fór að skoða hana, hafi sem sagt ekki séð hana áður, og hreifst mikið af henni.
Greinilega snilldar síða þarna á ferð, svo fór ég að lesa þráðinn aðeins betur og sá að þetta voru víst allt gamlar auglýsingar og eitthvað slíkt og því datt mér í hug að skrifa smá pistil hérna og hvetja fólk til þess að fara að nýta sér þessa síðu á ný.
Eins og áður sagði, er þetta snilldarhugmynd og mjög vel uppsett, þeir sem commentuðu á hinn þráðinn sem ég var að lesa vildu hafa dagsetningar á auglýsingunum, það væri vel hægt að skrifa bara dagsetningarnar sjálfur í auglýsinguna.
Jæja, þá eru mín fimm sent komin á vit veraldarvefsins og ég kveð að sinni.

kveðja, Reyni
I got rabies shots for biting the head off a bat but that's OK - the bat had to get Ozzy shots.