Þetta gæti hljómað hálf aulalega en ég hef verið að velta fyrir mér upp á síðkastið hvort að einhversstaðar sé hægt að kaupa einhvern lítinn batteríisdrifinn lampa eða eitthvað svoleiðis til að festa á möppur með lögum…

Málið er það að eftir nokkra daga er ég að fara að spila á litlum stað sem trúbador, og ég hef einu sinni spilað þar áður. Þá var svo dimmt að ég sá ekki neitt á lagamöppuna (með gripum og textum) svo að ég var að spila allt eftir minni.

Helst vildi ég ráða bót á þessu og vildi athuga hvort einhver væri með sniðuga uppástungu.
Ég er aðallega að spá í einhverju sem tæki ekki mikið pláss, gæfi frá sér hæfilega mikla birtu og gengi fyrir batteríum.

Takk takk.