Aria STP PB Pro active bassi til sölu. Hann er eins árs gamall og sér varla á honum fyrir utan einn a smá skemmd sem þó sést ekki nema maður viti af henni, ss ekki einu sinni lakkskemmd. Það er einn galli í rafkerfinu sem hann kom með en það er að þegar maður hækkar treble takkann þá heyrist smá aukahljóð á meðan takkanum er snúið en þó svo lágt að fólk úti í sal tekur sjaldnast eftir því. Hann kemur með nýjum strengjum og var settur upp af gítarsmið rétt fyrir jól.

Ástæða sölu er fjármögnun á nýjum hljóðfærum.

Nýr kostar hann í dag að mig mynni á milli 50 og 60 þús en ég ætla að biðja um 35 þús fyrir hann.

ss, nýr bassi, nýjir strengir á honum og nýuppsettur. Þyrfti helst að fara fyrir helgi þar sem ég er með annað hljóðfæri tekið frá fyrir mig í hljóðfærabúð en ég skoða samt skipti á flest öllu. Helst þó bassa eða dóti fyrir bassa.

Bassinn er á norðurlandi en get að öllum líkindum komið honum frítt suður.