Sælt veri fólkið.

Ég er með til sölu Line6 POD X3 ásamt öllum nýjustu uppfærslum sem völ er á þ.á.m nýju 2,0 uppfærslunni sem inniheldur fullt af nýjum effectum ofl. + notendaaðganginn minn að line6.com þar sem einungis þarf að breyta emaili og passwordi til að hann sé þinn.

Ég hef bara notað þessa græju heima hjá mér í heimaupptökur þannig að þessi græja hefur alldrei farið út úr húsi.
Kemur í original kassanum ásamt öllum aukahlutum og hnausþykkum manual og spennugjafa.

Er sjálfur búinn að flokka uppáhalds magnarana mína í patcha og tweaka þá til að mínum þörfum, en ekkert mál er að resetta græjuna fyrir þig ef þess er óskað.

Þar sem G.A.S-ið er gersamlega að drepa mig verð ég að fórna þessari frábæru heimaupptökugræju á bál hins eilífa græjufíkils til að fóðra púkann innra með mér.

Persónuleg hjálp með uppsetningu í gegnum e-mail eða síma fylgir ef sæmilegt verð fæst fyrir græjuna.

uppl um græjuna:

http://line6.com/podx3/

Tilboð óskast í gegnum einkaskilaboð.

knús og kossar
Gunni Waage
"To me a guitar is a guitar and they need to be played. Not be in museums or treated like holy relics." ~Joe Bonamassa~