Titillinn segir mest. Er með aðstöðu, stórt herbergi og þar hef ég gítarmagnara, eigin bassa og magnara auðvitað, og fljótlega ætla ég að redda tromusetti. Aðstaðan er heima hjá mér er á Kjalarnesi og það er um 25 mínútna keyrsla frá bænum, en á móti kemur að aðstaðan er mjög góð og ókeypis. Áhrifavaldar eru ansi margir, helstu eru Celtic Frost, Motörhead, Venom, Black Flag, Hellhammer, Black Sabbath ogsfrv ogsfrv. Já, það vantar víst alla nema bassaleikara og ég er 25 ára.