Daginn, er hérna með japanskan lawsuit Aria Pro II les paul custom, geggjaður gripur og gefur Gibson les paul ekkert eftir.

Hann er í virkilega góðu standi og það sér lítið á honum miðað við að vera gerður í kringum 1980. Svo var hann tekinn í gegn og settur upp þegar ég fékk hann.

Það er SD Jazz pickup í neck-pos og soundar hann fáránlega vel, og sustainar auðvitað í tætlur.(ekkert mál að láta upprunalega neck pickuppinn fylgja með)

Þarsem ég er ekki að finna mig í humbucker bransanum langar mér til að athuga hvort ég fái eitthvað áhugavert í skiptum fyrir hann (Fender strat/tele/jaguar etc etc.)

Mynd af Aríanum:
http://images.hugi.is/hljodfaeri/146565.jpg (áður en ég setti í hann SD jazz sem er með chrome hlíf yfir.)



Svo er ég með Ibanez jet king sem ég keypti glænýjan í Hljóðfærahúsinu í sumar en hef því miður ekkert komist í að nota hann.
Þannig hann er ennþá svo gott sem nýr og ennþá með plastfilmunni á neðri plötunni.

Hann er hollow og það gefur honum frábæran karakter, soundar mjög vel, þykkari sound en í Strata.

http://resources.ibanez.com/resourceservicehost/images/Ibanez/web/eg/products/JTK30HBK.gif mynd af eins gítar

Set á hann 65þús sem er ekki heilagt, öll tilboð berist í einkaskilaboð.
- b