PRS Singlecut SE

Body viður: Mahogany með maple top
Háls: Mahogany með Rosewood fingraborði

http://prsguitars.com/sesinglecut/specs.html

PRS hefur í 25 ár smíðað gæða gítara, enda er verðið á þeim eftir því. Fyrir nokkrum árum fóru þeir að láta framleiða fyrir sig svokallaða SE (Student Edition) gítara í Kóreu. Þeir eru, eins og nafnið gefur í skyn, ódýrari týpur af hinum USA smíðuðu PRS gíturum.

Meðal gítarleikara sem spila á PRS gítara, og eru með Signature týpur, eru Carlos Santana, Dave Navarro (Jane's Addiction, Red Hot Chilli Peppers), Mark Tremonti (Creed, Alter Bridge) og Paul Allander (Cradle of Filth).

Mér áskotnaðist þessi gítar í fyrrasumar, vinur minn lánaði mér hann til þess að prófa og svo þegar að því kom að skila gripnum fann ég að ég vildi það ekki, þannig að ég fékk hann til þess að selja mér bara gítarinn. Ég sé sko ekki eftir því. Þetta er án efa besti gítar sem ég hef spilað á í gegnum tíðina. Ég hef átt Gibson SG og spilað svolítið á Gibson Les Paul Custom og mér finnst miklu mun þægilegra og betra að spila á þennan.

Auðvitað er allt svona einstaklingsbundið og ég ætla ekki að alhæfa neitt um hver sé betri eða verri, enda tel ég mig svo sem ekki hafa vit til þess. Það eina sem ég gerði eftir að ég eignaðist hann var að lækka aðeins actionið á honum, mér fannst það ívið of hátt. En ég er nú bara að tala um kannski 1 mm, þetta er bara spurning um smekk.

Í gítarnum eru bara stock pickup-ar, svokallaði PRS Designed Bass og Treble Humbuckers. Eftir að hafa prófað hann í gegnum ýmsa magnara, komst ég að því að ég er mjög ánægður með þessa pickup-a og sé enga ástæðu til þess að skipta þeim út. Ég spila í gegnum Peavey Windsor magnara núna, en hef prófað hann í gegnum Carlsbro, Fender Hot Rod lampa, Peavey Classic lampa, Vox AC30 lampa, Vox transistor magnara og fleiri, niðurstaðan er sú að hann soundar mjög skemmtilega í gegnum flesta magnara, en pickuparnir njóta sín langbest beint í gegnum lampamagnara, bara beint Plug and Play.

Lokaniðurstaðan er sú að gítarinn fær 9 af 10 í einkunn hjá mér.
I got rabies shots for biting the head off a bat but that's OK - the bat had to get Ozzy shots.