Er með Lin 6 DL4 sem mér líkar vel við, en þar sem ég er með annan delay og á einhverju óvissu phase-i þá ætlaði ég að athuga hvort mér byðist eitthvað djúsí í skiptum fyrir hann.
Ég er ekki að leita af neinu average joe dóti eins og boss bjögunarpedal eða einhverju þar fram eftir götum.

Ég væri til í EHX Micro Synth, Pog eða eitthvað álíka sérkennilegt. Er einnig líka mjög heitur fyrir Moog Low Pass filternum eða Ring Modulatornum (átti einn hér áður fyrr og sakna hans mjög).

En einnig er ég líka opinn fyrir allskonar furðulegu dóti þannig að ef þið hafið eitthvað áhugavert til skiptanna þá endilega hendið á mig svari.

P.S. Gæti einnig haft áhuga á því að komast yfir Squier Supersonic, Cyclone, Jagmaster eða einhvern álíka offset gítar í skiptum.