Heilir, sælir og gleðileg jól.

Ég er að leita að nettu trommusetti til að hafa uppsett öllum stundum í stúdíóinu hjá mér. Plássið er lítið og þess vegna er ég að leita að einhverju smávöxnu en þó ekki einhverju barnadóti. Helst bara 18“ bassatrommu en 20” sleppur alveg líka. Kit með snare, kicker, statífum, stól og simpönsum er það sem ég er að óska eftir. Og plís ekki eitthvað rusl. Er með 80-100 kall í bödda fyrir þetta.

Koma svo…

Bronson
We´re gonna play a song. If it sucks it´s jazz - if it´s good, we got lucky! - Stevie Salas