Kunningi minn varð fyrir því að það var brotist inn hjá honum í gær og meðal annars stolið frá honum Fender Stratocaster, í augnablikinu veit ég ekki meira um gripinn en það að hann hafi verið ljósbrúnn og hvítur sem ég geri frekar ráð fyrir að þýði sunburst með hvítri plötu en ég mun uppfæra nánari upplýsingar um gítarinn strax og ég fæ þær.
Ef einhver sem þið þekkið ekki eða bara einhver sem er almennt vafasamur fer að bjóða ykkur Fender Strat til sölu á næstu dögum þætti mér vænt um það ef þið senduð á mig skilaboð með helstu upplýsingum.
Það var líka stolið tölvuskjá, stafrænni Canon myndavél og hljómflutningstækjum.


Bætt við 8. desember 2009 - 18:23
ég sá mynd af gítarnum og þetta er natural finish / viðarlitaður strat með hvítri plötu, maple fingraborði og að mér sýndist 70s headstock.
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.