Well, ég er í einhverri tilvistarkreppu hvað effektasafnið mitt varðar og voðalega uninspired þessa dagana. Því ætla ég að sjá hvað býðst til skiptanna hérlendis fyrir þennan óendanlega sjaldgjæfa pedal sem tók mig þó nokkur ár að komast yfir.

Ég er í raun að leitast eftir einhverju í svipuðum flokki hvað rarity varðar og verð. Myndi íhuga slík tilboð eins og HOG og pening á milli eða eitthvað álíka. En er einna helst að leita eftir einhverju úr eldri eftirsóknarverðari flokknum. Mjög skotinn í því að komast yfir Lovetone pedal.

Ég þarf ekkert að kynna þennan pedal. Þó nokkrar Smashing Pumpkins plötur hafa gert það fyrir mig.
Um er að ræða upprunalegu framleiðsluna á pedalnum.

Ef þú hefur eitthvað á milli handanna sem þú telur að gæti vakið áhuga minn þá endilega hafðu samband.


Bætt við 30. nóvember 2009 - 10:21
Myndi einnig íhuga skipti á einhverjum ljúfum gítar. Eitthvað í áttina við Jazzmaster, Jaguar, Mustang etc. etc. Einhvern offset gítar. Eða einhvern semi-hollowbody.