Uuu, jæja. Nú er maður kominn með alvöru gítar í hendurnar og langar að uppfæra í alvöru magnara.
Eins og er þá er ég með 10W magnara með 3 knobs, gain, tone og volume. Langar í eitthvað með fleiri stillingum. Og eitthvað kraftmeira. Ef ég fer hærra en ca 60% með volume þá fer að heyrast eitthvað skrölt þegar ég slæ á djúpa E.

Svo, með hverju er mælt? Ekki einhverjar sjúkar fjárhæðir. 20-35 kannski?