Þannig er að ég er nýbúinn að koma mér upp bretti með 5 effektum. Straumgjafinn er frá Trex (9v) og hann getur keyrt 5 effecta.

Vandamálið er að ég er með 2 Digital effecta (reverb og delay) sem mig grunar að séu of straumfrekir því þeir virka ekki báðir saman nema þá að ég aftengi einhvern af hinum effectunum.

Get ég eitthvað gert í þessu eða verð ég að fá mér annann straumgjafa? og þá hvernig?

kv, Örvar.