Ég veit að ég er ekki að skrifa þetta á réttan stað en ég bara kann ekkert á huga þar sem ég nota þessa síðu aldrei.

Mig langar í ódýran, notaðan kassagítar. Hann verður samt að vera í nógu góðu ástandi til að hægt sé að spila á hann - ég kann ekkert að gera við svona dót:P

Ef þið vitið ekki um gítar, hafið þið þá einhverja hugmynd um hvað ég á að borga fyrir notaðan kassagítar? Það væri fínt að vita það svo það verði nú ekki svindlað á manni.. það kemur víst fyrir mig reglulega:/

Ég sá reyndar rétt áðan á barnalandi að það sé verið að selja kassagítara í Europris á 7000 kall.. Kannast einhver við það? Veit einhver hvort þeir endist út árið?