nú er ég að spá í að kaupa mér nýjann magnara og datt í hug að spyrja ykkur hvað þið mælið með (að ég skoði fyrst allavegana)

ég er að leita að litlum magnara, mjög litlum. æfingamagnara sem ég get notað heima hjá mér, inni í herbergi, við eldhúsborðið o.s.fr. hann má ekki vera mjög hávær því e´g þarf að geta notað hann (án þess að vera með hann stilltann á 1) þótt að allir séu heima. Hann þarf að vera góður og stabíll og fínn hvort sem ég sé að spila foo fighters eða mastodon. overdrive rás er ekki vandamál þótt að það væri fínt ef hann væri með fínt óverdræv.

og ég setti þetta ekki í “óskaðu eftir eða auglýstu” vegna þess að ég vil ekki að þið reynið að selja mér dót sem þið eigið, ég er að spyrja um ráð og hugmyndir áður en ég fer að rölta milli búða.