Já, þetta er magnarinn sem var nýlega auglýstur af Tjeko hér á huga. Ég var með gítar til sölu sem ég skipti fyrir þennan magnara með það í huga að reyna að selja magnarann í staðinn fyrir gítarinn. Ef ég ætti ekki slatta af öðrum eðalgræjum þá myndi ég eiga þennan magnara vegna þess að hann er virkilega góður og fjölhæfur.

Magnarinn er í topp standi og lítur út eins og nýr. Allir fylgihlutir eru með honum (cover, footswitch, handbók, pappírar).

Þetta er einstakt tækifæri til að eignast eðal Mesa Boogie magnara í toppstandi og á hlægilegu verði.

Magnarinn er staðsettur á Ísafirði en ég get sent hann hvert á land sem er á kostnað kaupanda(rúmar 3000 kr. með flugi til Reykjavíkur)

Hafið samband hér á huga, á stefanfreyr hjá hotmail.com eða í síma 849 6063

Nánari upplýsingar um magnarann:

http://mesaboogie.com/Product_Info/stiletto/stilettoDeuce-Trident.htm