Til sölu eitt stykki Peavey 5150 Combo magnari, keyptur nýr '98. Snilldar magnari, en það helltist hálfs lítra bjór ofaní formagnarann og ollu skemmdum. Það hafa nokkrir skoðan hann en ekki getað lagað að fullu.
Eins og efsti combo magnarinn á þessari síðu:
http://www.kellyindustries.com/guitars/peavey_amp_5150.html

Vandinn með hann núna er þessi:
- Það smellur í honum þegar skipt er um rás clean/drive. Lét bæta á hann “mute” takka sem ég get notað til að forðast smellina.
- Hann er “óvenju” hávær. Þessi magnari er tröll, en eftir bjórslysið get ég ekki lækkað almennilega í honum. Hef þó spilað á hann með attenuator, með góðum árangri.
- Reverbið virkar ekki.

Opninn fyrir tilboðum, sel hann á réttu verði, það er heilmikið hægt að gera með hann, þó svo hann sé ekki í góðu lagi. Kannski að einhver laghentur geti átt eitthvað við hann.

- Þessi magnaður er þungur… ég á þá við, hann er 42 kíló.