Jæja, þá er komið að því að splæsa í nýjan gítar, eitthvað gæðastöff. Hef verið að skoða mér Les Paul og Explorer gítara en heillast einnig af ESP og Schecter gítörum.

En ég var nú að pæla, þar sem ég braut whammy barinn á gamla gítarnum og hef ekkert getað notast við það þá langar mig í þannig á nýja gripinn og var að velta því fyrir mér hvort þetta vantaði á LP gítarana þar sem ég sé þetta ekki á myndum.

Þið megið líka koma með tillögur að góðum gítörum handa mér þar sem ég hef ekkert ákveðið mig. Ætla mest að spila metal/hard rock í anda Metallica, A7x, Kiss, Megadeth etc.