Komiði öll blessuð og sæl. Mér datt nú bara svona í hug að athuga hvort einhver áhugi væri fyrir því að stofna koverhljómsveit með mér til að skemmta mér og jafnvel öðrum… Ég er stelpa á 20. aldursári sem er nýbúin að klára menntaskólann og hefur allt í einu fullt af frítíma á kvöldin og um helgar :-) Ég syng líka bara ansi vel. Ef ykkur líst vel á þetta og þið kunnið eitthvað til verka á hljóðfærum megið þið endilega senda mér skilaboð. Ákjósanlegt væri að fá bassaleikara, gítarleikara, trommuleikara eða hljómborðsleikara. Allra best væri ef til væri fullsköpuð hljómsveit sem ég gæti bara “dottið” inn í :-)

Calliope

P.S. Búið ykkur undir það að allur kjarkur fari úr mér, ég nenni þessu ekki og ég láti ekkert af þessu verða ;-) en hafið samt samband.