Jæja… þar sem minn “eðal” Rocktron X-tune dó á dramatískan hátt þá vantar mig annan pedal tuner…

Ætlaði að kanna hvort einhver væri að losa sig við sinn áður en ég neyðist til þess að henda haug af pening í nýtt tæki…

Það sem ég er búinn að skoða er Korg Pitchblack, Boss TU-2 og Planet Waves gæjann… allt kemur til greina,,, en heitastur fyrir Korg-inum en efa að margir séu að losa sig við hann… :)

EP eða svara þræði ef þið eigið eitthvað handa mér…