Ég auglýsi gítarinn minn til sölu, svartan PRS SE Tremonti. Þessi gítar er úr mahogany við og er Singlecut, með 22 bönd, þykkan háls úr rósarviði, 3-way picköppa switch, volume og tone hnappur fyrir hvorn picköppinn og fasta brú.

Hann er smá laskaður eftir fall í gólfið eitt skiptið vegna klaufaskaps :/ Lítill hluti lakksins á hliðinni kýldist inn og sprunga kom í einn hnappinn sem og á hausnum. Enn gítarinn er annars í góðu standi og spilast mjög vel. Svo með honum fylgir taska.

Hér eru myndir

Mynd 1
Mynd 2

Ég er ekki með nákvæma verðhugmynd en ég vil svosum byrja á að sjá hvað mér býðst fyrir hann.

Þeir sem hafa áhuga geta hent á mig línu í PM eða haft samband við mig í síma 8490447

Kv. M

Bætt við 2. júlí 2009 - 20:51
Gleymdi að taka það fram að ég er staðsettur í Kópavoginum.
“Everything is so simple for you, either you don't understand it, or you don't care.