Ég er hér með Amerískan Fender Stratocaster Deluxe árgerð '98 í litnum Daphne Blue sem mig langar til að skipta. Pickguardið á honum og takkarnir eru svo í svona “aged” mint green hvítum lit.
Í gítarnum eru núna Samarian Cobalt Noiseless pickuppar sem hljóma alveg sóðalega vel með þessum gítar. Hvergi er að finna rispur eða neina skemmdir á gítarnum og lítur hann út fyrir það að vera nýkominn út úr búðinni. Á gítarnum eru einnig straplockar. Með gítarnum fylgir Fender hardcase/flightcase.
Serial númerið á gítarnum er: N8334836

En ég er helst að leitast eftir skiptum á gítarnum fyrir eftirfarandi:

Fender Mustang
Fender Jaguar
Fender Jazzmaster
Fender Telecaster
ESP Ron Wood Telecaster
Gibson SG (helst P90 útgáfu)
Gibson ES týpur (175, 335 etc.)
Gretch Semi/Full hollowbody gítarar

En ég skoða líka aðra semi/full hollowbodya og aðra gítara og er sérstaklega veikur fyrir hljóðfærum með Bigsby ef einhver á slíkt…

Er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu.