Ég er með road ready effecta bretti/tösku til sölu, ástæðan fyrir því að ég er að selja er að mig vantar peninga og svo á ég ekkert það marga effecta þannig að ég þarf ekki svona stóra tösku/bretti. Þetta er mjög góð taska, ekki of þung og mjög sterk. Þú festir effectana í brettið á kubba sem eru í töskunni, festir þá með frönskum rennilás sem fylgir með. Það er hægt að færa kubbana til þannig að þú getur hagrætt brettinu og uppröðun pedalanna alveg eins og þú vilt. Þetta er mjög hentug taska/bretti og sérstaklega ef þú ert að spila mikið á tónleikum eða ferðast mikið með græjurnar þínar, t.d á milli æfingahúsnæða eða eitthvað því um líkt. Mér finnst 20.000 kr nokkuð sanngjarnt verð og set það því á töskuna/brettið.


Hérna er mynd af samskonar tösku/bretti
http://www.hugi.is/hljodfaeri/images.php?page=view&contentId=5889930

Hér eru frekari upplýsingar um töskuna/brettið
http://www.roadreadycases.com/prodetail.php?sku=RRGP32

Ef þið hafið áhuga eða eitthverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Björgvin B. Björgvinsson (s.8660396)