Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður smíðaði gítarinn árið 2006 og er þetta einn af þeim síðustu sem voru lakkaðir með gamaldags “nitrocellulose” lakki (leiðréttu mig Gunnar ef ég hef þetta ekki rétt eftir). Gítarinn er svartur, hálsinn með rósaviðarbretti, miðlungsþungur og með Seymour Duncan pickupum (STR1 háls og STL1b brú). Ég er annar eigandi gítarsins. Fyrir þá sem ekki vita þá spilar Ómar Guðjónsson gítarsnillingur mikið á svipaðan Telecaster sem Gunnar smíðaði.

Gítarinn er mjög fallegur og er næst best hljómandi Telecaster sem ég hef prófað og hef ég prófað nokkuð marga (sá besti var mjög gott eintak af Fender Custom Shop Nocaster). Eina sem hægt er að setja út á gítarinn er að það eru tvær lítið áberandi sprungur í lakkinu og það mætti aðeins fínstilla setupið á honum.

Eina ástæðan fyrir því að ég set gítarinn í sölu er að ég er ekki alveg að fíla 12" radíusinn á gripbrettinu. Ég vil hafa brettið aðeins kúptara (minni radíus).

Ég er staðsettur á Ísafirði en ég verð með gítarinn í Reykjavík næsta föstudagskvöld og fyrripart laugardags.

Myndir má sjá á:

http://luthier.is/LuthierGallery1.htm (svartur, merktur Tele 2006)
http://luthier.is/p153.htm

Ég er opinn fyrir skiptum/uppítöku á ýmsum gítargræjum og þá hef ég helst áhuga á góðum kassagítar eða Fender ‘57 eða ’62 Reissue Stratocaster eða Eric Johnson Stratocaster en margt annað kemur til greina. Verðhugmynd í beinni sölu er 160.000 kr.

Nánari upplýsingar fást hér á huga, í síma 849 6063 eða á stefanfreyr hjá hotmail.com