Þú ert eflaust að velta fyrir þér af hverju hann má ekki vera of góður. Já það er saga að segja frá því. Sko við erum nokkrir strákar um þrítugt sem erum nýbyrjaðir að spila og satt að segja erum við rétt mellufærir í spilun. Vanir að glamra eitthvað í partýum og svoleiðis með vinum og vandamönnum. En sem sagt ætlum að láta drauminn rætast og byrja að spila. Við erum 3 gítarleikarar og ætlum að skifta bassanum okkar á milli. Það er einn hljómborðsleikari. Við áttum að fá einn félaga okkar sem spilar á trommur en hann er svo óáreiðanlegur að við teljum að hann geti ekki verið með okkur í þessu. Við erum komnir með æfingaaðstöðu og kostar hún 6000 á mann + trygging sem er 6000 KR og er endurgreidd í lok samnings eða þegar hætt er í bandinu. Við ætlum að byrja á því að taka einungis cover og svo er aldrei að vita nema eitthvað af viti komi úr þessu. Við viljum bara fullþroska einstakling. Erum allir fjölskyldumenn og uppkomnir. Ef þú telur að þú getir glamrað með okkur og komist í góðan hóp endilega sendið mér línu.