Eins og titillinn gefur til kynna vantar okkur meðleigjendur. Um er að ræða ca. 20fm herbergi í æfingarhúsnæði á Skemmuvegi í kópavogi (rétt fyrir neðan Byko). Leigan fyrir herbergið er 50 þúsundkall á mánuði sem skiptist slétt milli banda. Ef að þið eruð í bandi, eruð heiðarlegir einstaklingar sem ekkert vesen er á og eruð að leita að húsnæði er þetta algerlega málið fyrir ykkur!

Við erum einnig að leita að trommara sem nennir að taka þátt í að gera smá hávaða með okkur. Við erum búnir að ræða mikið um hvað við viljum gera en höfum ekki fundið húsnæði fyrr en nýlega svo að trommarinn tæki þátt í að móta stefnu okkar frá upphafi, sem hlýtur að teljast skemmtilegra en að vera nýi gaurinn. Við erum að hlusta á bönd eins og Nadja, Sunn O))), Wormphlegm, Burning Witch, MOSS, Electric Wizard, Earth, Om, Bohren & Der Club Of Gore, svona til að nefna eitthvað, og langar svolítið að gera eitthvað í svipuðum stíl og þessu bönd. Við ætlum þó ekki að negla niður neina ákveðna stefnu aðra en ofurhægt og þungt doom, en ef að okkur langar að gera eitthvað öðruvísi en það gerum við það bara.

Endilega sendiði mér(eða myhateisyourpain) einkapóst ef þið hafið áhuga á þessu!