Ég uppgötvaði í dag að ég var að reyna að selja þennan gítar af kolröngum ástæðum, en ég var upphaflega að reyna að þéna eitthvað á sölunni.

Ég komst að því að mig vantar bara nýtt hljóðfæri, og ég fann það hljóðfæri í dag. Þegar ég uppgötvaði þetta ákvað ég að hætta þessum gróðahugsunum og selja gítarinn á það sem ég keypti hann á, þrátt fyrir að það sé helmingur á við hvað hann er metinn á í dag.

Mynd af honum er að finna á slóðinni fyrir neðan og verðið er 65 þúsund krónur… 60 ef ég get losnað við hann fyrir mánudaginn.

http://images.hugi.is/hljodfaeri/149849.jpg