Ég er svona “semi” byrjandi sem hef verið að glamra á kassagítarinn um tíma en er nú að leita að rafmagnsgítar.
Vill kaupa góðan gítar sem gott er að spila á fyrir byrjanda, gítar sem er í 100% standi en má þó alveg sjá á honum.

Ég veit voða lítið um rafmagnsgítara og er því ekki að óska eftir öðru en því sem ég er búinn að tala um, en ég fíla svona Les Paul look þó allt sé opið.

Ég er ekki að leita að einhverju ónýtu rusli en heldur ekki einhverjum 100.000.kr + gæðagrip.

Magnari: Hef EKKERT vit á magnörum.
Er bara að leita að ódýrum magnara sem virkar vel. Verð mest með headphone-inn tengdann!

Takk…