Þetta er nú kannski ekki svo mikið, en nokkuð er það þó:

Roland EF-303 Groove Effects
http://www.rolandclan.info/en/model/ef-303/
Þetta er sjaldséður gripur. Fletti honum upp á ebay og fann engann svona. Stórskemmtilegur gripur með alls konar effektum og meira að segja tb303-legum synta, sem og sérkennilegum trommusynta. Endalaust hægt að leika sér með þennann. Straumbreytir fylgir, sem er þó ekki sá upprunalegi, heldur jafnvel betri breytanlegur straumbreytir. Ég mæli með þessum, sem og fleiri:
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Effects/product/Roland/EF-303+Groove+Effects/10/1
Hann hefur verið að fara á +$150 samkvæmt þessarri síðu, en ég er opinn fyrir tilboðum.

Yamaha FX500
http://www.yamaha.com/yamahavgn/CDA/ContentDetail/ModelSeriesDetail/0,,CNTID%25253D1580%252526CTID%25253D225100%252526LGFL%25253DY,00.html
http://guitargeek.com/gearview/901/
Skemmtilegt effektatæki sem ég er pínu tregur við að losna við eftir að hafa komist að því að Slowdive notúðu eitt svona, en ætla samt að prófa. Kemur með breytanlegum straumbreyti eins og EF303. Alveg í fantafínu ástandi og meira að segja nýlega búið að fríska upp á tengin aftan á, en það var pínu sambandsleysi í þeim. Nú er þetta gott sem nýtt, nánast.
Hvað finnst fólki?
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Effects/product/Yamaha/FX500/10/1
Ég er opinn fyrir tilboðum, en samt krítískur vegna slowdive tengingarinnar, en ég elska sándið hjá slowdive…

Yamaha TG55
http://www.sonicstate.com/synth/tg55.cfm
Þennann keypti ég bara fyrir mjög stuttu síðan, en hef aldrei nýtt mér hann. Ég hef bara verið upptekinn við hljóðhönnunn inní tölvunni að ég hef ekkert einblínt á utanáliggjandi synta. Góður racksynthi samt, sérstaklega fyrir góð 80's hljóð.
Hvað segir liðið?
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Keyboard+And+MIDI/product/Yamaha/TG-55/10/1
Komið bara með tilboð ef þið hafið áhuga.

Ensoniq SQ2
http://www.sonicstate.com/synth/sq1.cfm
Þessi hefur fylgt mér í ein 15 ár, og held ég að það sé kominn tími til að sleppa takinu. ég nota hann aðallega bara sem MIDI hljómborð þessa daganna, sem er synd af því að hann er með gríðarlega fína möguleika í hljóðhönnun. Það er líka hægt að taka upp heilu syntalögin á honum. Hann er með ansi sannfærandi trommusánd, gott píanósánd og fullt af alls konar weirdo hljóðum. Það eru tveir lyklar á hljómborðinu brotnir, en þó ekki það mikið að ekki sé hægt að nota þá.
Fínir dómar:
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Keyboard+And+MIDI/product/Ensoniq/SQ2/10/1
Tilboð, einhver?

Svo á ég líka 3 Hank trommur, ef einhver hefur áhuga. Veit samt ekki hvort mig langi að losna við þær, en ég get samt alltaf gert fleiri…

Það getur verið að ég eigi meira dót, en ég er ekki í stúdíóinu til að skoða allt sem stendur. Þá kem ég bara með annann þráð seinna.

Hafiði samband ef einhver hefur áhuga, helst email á 7oi@7oi.org