Boss ME-50 pedall til sölu. Góður multieffekt sem hefur enst í góðan tíma og mjög gaman að leika sér með hann. Hægt er að vista 30 mismunandi stillingar á hann sem hægt er að skipta á milli með auðveldum hætti eða bara leika sér að finna nýjar. Straumbreytir fylgir að sjálfsögðu.

Ástæða sölu: Mig sárvantar pening og verð bara að láta mér nægja acoustic spil fram á sumar.

ATH. Boss eru búnir að gefa út nýjan ME sem er ME-70 og inniheldur einfaldlega aðeins fleiri effekta. Rín sögðu mér að þeir myndu byrja selja hann í sumar ef ég skildi þá rétt. Mun öruglega koma til með að kaupa mér ME-50 eða ME-70 aftur í sumar eftir að hafa unnið smá.

Verð á þessu í rín er 52.300. Pedallinn er ca. eins árs gamall, kannski eins og hálfs, er allveg til að fara niður í 25-30 þús.