Sælir Hugarar

Ég vil bara benda fólki á það að hægt verður að prufa handsmíðan Telecaster frá Gunnari Erni og Dumble Overdrive Special eftirlíkingu handvíraða af mér á milli 12 og 16 í Tækniskólanum á Skólavörðuholti laugardaginn 28. febrúar.

Einnig mun Ómar Guðjóns taka nokkur lög á gítar frá Gunnari og þennan magnara rétt eftir 12 í matsal skólans.