Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta sami magnari og JCM800 2203, bara með gamla útlitinu. Þessir magnarar voru framleiddir með litlum breytingum frá 1975 til 1989 (JMP 1975-1981 og JCM800 1981-1989). Helsta breytingin var 1984 þegar JCM800 útgáfunni var breytt örlítið í sparnaðarskyni (fækkað um tvo þétta og stilliviðnám og tengi lóðuð beint á prentplötuna).

Nánari upplýsingar á http://kasmir.hugi.is/Leak