Kæru Hugarar!

Í hádeginu í dag varð Jón Páll Bjarnason gítarleikari fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn í bifreið hans og stolið gítarmagnara af gerðinni \“Polytone Minibrute\” og einnig gítarstatíf. Þeir sem gætu hafa orðið magnarans varir vinsamlegast hafið samband við Jón í síma 847-0947 eða sendið mér skilaboð og ég kem því áleiðis.

Með von um að menn séu með opin augu fyrir þessu, við verðum að standa saman gegn óprúttnum aðilum!

kv. Svava