Eru ekki einhverjir hérna sem hafa áhuga á því að stofna Rock band með pung, eða hvað sem maður ætti svo sem að kalla þetta. Bara old school gaman rock. Ekkert nýtt, ekkert verið að reyna að finna upp hjólið, ekkert framúrstefnulegt. Bara keyrsla, þétt og stuð, tónlist sem fær fólk til þess að dilla sér, gaura til að langa í bjór og konur til þessa að klæða sig úr og bera brjóstin.

Ég er s.s. 24 ára trommari á höfuðborgarsvæðinu sem væri akkúrat til í eitthvað svona. Málið er bara það að ég er bara einn og það verður ekki mikil tónlist til úr því. Mig vantar ss gítar, bassa, söng og eftilvill hljómborð ef út í það er farið. En ef að það er akkúrat hljómsveit einhverstaðar úti í bæ sem er í svipuðum pælingum og vantar akkúrat tormmara þá ættu þið ekki að þurfa að leita lengra.

Þá er bara spurningin, er einhver game?

Svona bara til gamans ætla ég að henda inn nokkrum videoum til að sýna í nokkurnveginn hvaða ég er að hugsa um, en ekki taka þessu sem algjöri staðfestu:

http://www.youtube.com/watch?v=4zOF1T6nXvQ
http://www.youtube.com/watch?v=GdDxz2bkfhE&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=-sDi0lpMg_A&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=eaVlvr7UGvg&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=vuuxGvRTvSw


Bara pósta hérna fyrir neðan eða skjóta á mig hugskeyti ef þið hafið áhuga.