Já, ég er með einhvað dóti hér til sölu sem ég er hættur að nota og hefur safnast upp í gegnum tíðina hjá mér.

Surtur er gítar sem ég keypti í gegnum síðuna spilverk.com.
Ég keypti gítarinn 15. febrúar og ég hef aldrei spilað með hann live, áðstæða sölu er sú mig vantar pening. Þar sem að ég keypti hann 15. janúar og er búinn að eiga hann í um það bil tvær vikur þá vill ég ekki fá minna fyrir hann heldur en 45.000 íslenskar kreppu krónur.

Meiri upplýsingar um gítarinn er hægt að nálgast á síðunni
http://www.spilverk.com/cgi-bin/WebObjects/eWeb.woa/43/wo/441IJGhgfJsn2xNkBj8augTF3y1/0.29.0.0.0.1.0.1.1.1.1.0.1.0

Behringer gítar, ég keypti þennann gítar fyrir nokkrum árum og er einn af mínum fyrstu gítörum, hann er ekki með neitt sérstakt nafn sem ég hef tekið eftir en hann er mjög fínn í spilun. Hálsinn er mjög góður, böndin ásættanleg það væri samt sniðugt að stilla hálsinn uppi á hausnum, pickuparnir eru bara einhverjir hefðbundnir byrjenda gítar pickupar, annars er gítarinn léttur og fínn. Þetta er egta dæmi í einhvað gítar projekt, það er vel hægt að nota búkinn og hálsinn í það og einhvað fleira sem mönnum dettur í hug.

Squier by Fender, þetta er einhver byrjenda gítar sem ég fékk uppí hendurnar fyrir 2 árum. Hann er síðan ég f
ékk hann bara búinn að sitja í geymslunni minni og safna rikið, hann er nánast alveg eins og Behringerinn, en eins og ég sagði um hann þá þarnast hann smá stillinga á hálsi og væri ef til vill góður í einhvað gítar projekt.

Fender magnari, ég er með Fender Frontman 15G sem ég fékk með Squier-inum og er bara ágætis æfingamagnari til þess að æfa sig heima í herberginu sínu. Hann er með Volume(normal), Gain, Volume(drive), Treble, Middle og Bass. Hann er 15 wött sem eru knúin áfram af 8" keilu.

Zoom GFX-8 multieffect, þetta er græja sem ég keypti mér fyrir einhverjum árum síðan og hef notað mikið síðan þá.
Hann kemur ekki með straumbreyti(týndi honum:S) og ég á ekki tösku utan um hann, 1-2-3 valtakkarnir eru einhvað bilaðir, einn brotinn, vantar einn og einn fastur niðri. Þetta eru eflaust vandamál sem einhverjir græju gúrúar geta leyst en ég er ekki það vel að mér þegar að kemur að þeim málum.

Spænsk lúta, ég var á Kanarí eyjum um jólin og ákvað þegar ég fór út að gefa sjálfum mér einhvað spænskt hljóðfæri. Þetta er 10 strengja hljóðfæri sem hægt er að stilla á marga vegu, eins og ég er með hana stillta núna er:
A-D-G-C-E-A. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um þetta hljóðfæri á http://en.wikipedia.org/wiki/La%C3%BAd

Með lútunni koma tvö auka strengjasett en fyrir eru strengir í henni, hún kemur í flottri þykkri mjúkri tösku.



Þið athugið að með gítörunum koma engar ólar né stadíf. Surtur kemur í upprunarlega kassanum sem ég fékk hann í og svartri tösku, Behringer gítarinn kemur ekki í neinni tösku, Squier gítarinn kemur í tösku svartri tösku.

Surtur-gítar = 45.000 Kr(keypti þennann 15. janúar síðast liðinn á 55.000 Kr)

Behringer-gítar = 10.000 Kr(keypti hann nýjann á 20 og einhvað þúsund krónur fyrir nokkrum árum)

Squier-gítar = 10.000(keypti nýann byrjendpakka á 40.000 Kr fyrir 2 árum með Fender magnaranum í)

Fender Frontman 15G-magnari = 10.000(keypti nýann byrjendpakka á 40.000 Kr fyrir 2 árum með Squier-inum í)

Zoom GFX-8-multieffect = 25.000(keypti hann á sínum tíma á 45.000)

Spænsk lúta = 75.000(keypti hana á 90.000 Kr um jólin, verð bara að segja að þetta er klassa gripur og mér þykir sárt að sjá á eftir þessari)



Einnig er ég með til sölu nokkra mica.

2 stk. Audix i5 = 11.000 Kr 1.stk
1 stk. Shure SM57 = 14.000 Kr 1.stk
2 stk. Audix om3 = 12.000 Kr 1.stk
2 stk. MXL Fox = 6.000 Kr 1.stk

Til gamans má geta að ég hringdi í Hljóðfærahúsið sem er með umboð fyrir Shure og MXL, einnig hringdi ég í Extone sem er með umboð fyrir Audix.

Eftir þessi símtöl fékk ég gefin upp verðin á þessum micum nýjum útúr búðinni.

Hér eru þau:

1.stk Audix i5= 15.900
1.stk Shure SM57= 24.490
1.stk Audix om3= 18.490
1.stk MXL Fox= 8.000-9.000

Ég keypti þessa mica síðast liðið sumar og er einfaldlega búinn að missa áhugann á upptöku dæmi í bili og þarf peninginn. Micarnir koma allir í töskum en ég á ekki lengur kassana utan af þeim.


Endilega hafiði samband hér á huga ef þið hafið áhuga á einhverju og verið ekki hræddir/ar við að spyrja útí það sem þið hafið áhuga á.

Bætt við 31. janúar 2009 - 03:26
Ég kann ekki að setja mynd hérna inná, HJÁLP!.

Annars get ég sent þeim sem hafa áhuga á þessu mynd af dótinu.