Veit einhver hvar er hægt að fá svona eyrnatappa sem drepa ekki niður háu tónana, svona sérhannað til að hlusta á tónlist með (Helst á Akureyri). Þeir voru búnir hjá Tónabúðinni og þeir höfðu ekki hugmynd um hvenær þeir fengju þá aftur og ég gæti þess vegna verið búinn að missa heyrnina á hljómsveitaræfingum áður en það gerist. Líka ef einhver veit hvað svona kostar eða mælir með einhverju sérstöku eða mælir alls ekki með einhverju ákveðnu þá væri gaman að fá svar frá viðkomandi.