Ég er að velta fyrir mér hvort það sé áhugi fyrir því kæru tónlistarmenn hvort þið hafið áhuga á sérsmíðuðu effecta borði sem væri þá hægt að breyta í tösku og halda á, eins og ég er með það, kem ég fyrir á mínu borði 6 boss pedulum og einum whammy en þá er borðið troðið.

Ég gerði fyrir sjálfan mig effecta borð úr skjalatösku sem ég get lokað hvenær sem er og borið.


Einnig get ég líka gert töskur eftir mælingum ef það hentar frekar.

Ef einhver hér hefur áhuga á effecta borði/tösku þá má endilega láta mig vita hér og í framhaldi verður hægt að semja um verð.