Lumar einhver á góðu æfingarhúsnæði?

Þannig er mál með vexti að rokkhljómsveit í Kópavogi bráðvantar æfingarhúsnæði einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Best væri ef að söngkerfi og trommusett væru á staðnum og kannski einverjir magnarar. Við viljum helst borga lítið sem ekkert, að minnsta kosti minna en 26.000 því að þá getum við alveg eins farið í tónþróunarmiðstöðina:)

Fyrirfram þakkir..

Bætt við 10. desember 2008 - 23:59
Ef það er bara eitthvað í boði sem kostar einhverja þúsundkalla þá væri klikkað ef einhver hljómsveit væri til í að deila æfingarhúsnæðinu með okkur.