Sælir hugarar.

Ég er hér með til sölu tvö hardcase. Sér lítið á þeim báðum og gegna sínu hlutverki mjög vel.


Annars vegar er það hardcase utan af Gibson Explorer. Í mjög góðu standi. Á töskunni er talnalás og er hún hvít að innan, geðsjúklega flott!

Svo er það hardcase utan af ESP Eclipse II, en hún passar náttúrulega líka fyrir Eclipse I. Hún er bara eins og allar þessar ESP töskur. Svört að innan og utan og merkt ESP. Hún er svo læsanleg með lykli.

Hérna er svo linkur af mynd það sem sést inn í Explorer töskuna:http://www.hugi.is/hljodfaeri/images.php?page=view&contentId=5004948#item5060632


Verðin á töskunum nýjum eru þannig að Gibson taskan kostar eitthvað um 30.000 kallinn og ESP taskan er eitthvað um 20.000 kallinn.

Endilega skjótið bara á mig tilboðum, en alveg óþarfi að skjóta einhverjum dónatilboðum. þær eru ekkert fyrir mér en ég ætlaði bara að tékka hvort að einhvern vantaði svona.

Ástæða sölu er sú að brotist var inn heima hjá mér í sumar og gítararnir teknir ásamt fleiru, bæði gítörum og öðru dóti, þannig að það er allt í lagi með þessar töskur.


Með bestu kveðju: Anton Örn